Ađalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Video

bloggarar DK

Bloggarar ÍSL

Innskráningar kubbur

Nonnabitinn er á leiđinni.The Mansion

Ég veit nú ekki hvað ég get sagt þar sem ég er ekki á staðnum eða semsagt á The Mansion svo í staðin þá mun ég bera saman nokkurnvegin lífið í dk og svo á ísl. :)

Mánudagar í dk.



Svo eru allir morgnar svona ca:


Mánudagar á Ís og allir aðrir morgnar.



Svo hvor er betra ringulreið á morgnana í dk eða rólegheit á ísl?? Ég verð nú bara að segja að ég myndi frekar kjósa ófyrirsjáanlega morgna með ykkur heldur en fastar venjur.

Annars er tölvan mín ónýt og myndi ég setja inn etthvað skemmtilegt video af lífinu þarna í dk en ekki hægt í bili.. geri það bara seinna.

En annars Helgi bloggaðu bara fyrir lok fimmtudags áður en Mánudagskvíðinn kikkar inn. :)

eða kannski frekar á nýja tungumálinu. kvak kvak kvakva, kvakk kvaaaakk kvakk. :)

MISS YOU GUYS (kvakk kva kvvaak)

Kv. Jói Bjarni

Helgi DúfaThe Mansion

Afsakið seinkunina þetta er ófyrirgefanlegt og þess vegna lofa ég að næsta blogg komi á réttum tíma En hvar á maður að byrja mikið er búið að gerast á þessum 2 vikum ég og drési erum búnir að vera upp í skóla að læra á fullu en helgi er búin að sitja á barnum og drekka mikið, En litli strákurinn á skilið klapp á bakið hann náði að klára að mála herbergið tók aðeins 3 vikur, eftir að hann byrjaði, annan eins málara hef ég aldrei séð ekkert smá fljótur að þessu enda vann hann sem málari í eitt sumar.                                                                        
Við fengum samt nett sjokk um daginn við vorum inni eldhúsi að elda allt i einu varð allt hljótt í 30 sek  og allir sem þekkja Helga þá er aldrei hljótt í meira en 10 sek þegar maður er i kringum hann en allavega þá var hann uppiskroppa með hluti til að segja og lög til að syngja þannig maðurinn byrjaði að leika dúfu það er að segja labba um golfin með blakandi hendur og gagga eða hvað sem dúfur gera, stelpurnar skildu ekkert í þessu og heldu að þær voru komnar i actionary og byrjuðu að giska á allskonar fugla. En honum Helga fannst þetta svo rosalega skemmtilegt að leika dúfu að hann er farinn að fara niðrí bæ að angra túristina eins og sést á þessu myndbandi við vitum ekkert hvað við eigum að gera við strákinn þar sem hann vill ekki lengur fara úr búningnum.



Siðasti vika vorum við flest nú í útlöndum Andrés og Helgi fóru til íslands að vinna, ég og Linda fórum til Noregs sem var ágætt fyrir utan hvað normenn eru svo helvíti leiðinlegir. En greyið Halla var skilin eftir hér í horsens. Þannig það er ekki mikið að segja frá þeirri viku en næst langar mér að lesa blogg frá honum jóa og fá að vita hvað er að gerast hjá honum þannig ég segji að Jói þurfi að skrifa blogg fyrir næsta mánudag eða hann þarf að senda okkur vacum pakkaðan nonnabita innan 14 daga ef þetta klikkar hjá honum.     

Ég komst í gírinn!The Mansion

Úfffffffffffff, hvað það er erfitt að koma sér aftur í þennan blogg fíling aftur. En staðreyndin er þó samt sú að vegna mikils áreitis verður maður bara að koma þessum reynslusögum út.

Ég get nú byrjað á því að segja ykkur að hin óskilgetnu börn hans helga eru 6 og 5 mánaða gömul í dag. Þessi maður er náttúrulega með útúrþrungin poka milli lappanna, að þegar eitthvað gerist hjá kallinum er ekki hjá því komist að eitthvað líf kvikni. En já, hann á sem sagt tvö afmæli í dag, hann veit bara ekki enn hvers vegna.

Helgi kallinn heldur því fram að hann hafi mikla hæfileika, sem felast í því að hann getur séð aftan á hnakkann sinn. Svo um daginn kallaði hann á okkur inn á bað til sýna fram á þennan ,,hæfileika“ . Nú kvóta ég hann: „Strákar sáiði, ef ég sný mér baki í spegillinn og sný mér nógu hratt nokkrum sinnum þá get ég talið hárin aftan á hnakkanum.“ Ég og siggi vorum bara: „HA!?“ , „ já sjáið!“ Svo sneri maðurinn hausnum sínum nokkrum sinnum og reyndi hann að telja hárin! Þetta var það sýrðasta sem ég hef séð á ævinni minni. Því ef þetta hefði verið grín þá hefðum við náttúrulega hlegið með manninum, eeeeen honum var fúlasta alvara. Núna þori ég ekki að ganga inn í herbergið hans af ótta við að hann reyni aðra hluti sem mönnum er ómögulegt að gera.

Fótboltamót Íslendingafélaganna í Danmörku var hér í Horsens um daginn. Við Helgi tókum þátt og vorum í bestu liðunum, en hann Siggi var ekki með. Kvartaði hann eitthvað út af hnénu hans, en enginn trúði því nú. Það er ekki til eitt vitni af því að maðurinn hafi slasað sig eitthvað. Sannleikurinn er bara sá að hann hafi slasað sig miðsvæðis aðeins ofar en hnén. Og skammaðist drengurinn sig of mikið til þess að leita sér hjálpar þannig að hann beið bara eftir Lindu sinni. Hún lét sig síðan sjá sig eftir mótið, þannig að allt gloríið féll í minn og Helga hlut, en þó aðallega minn. Þar sem mitt lið komst áfram í 8 liðaúrslitin! J Á ballinu síðar um kvöldið var mikið drukkið af hálfu Helga. Við týndum manninum (það er að segja allir nema Siggi og Linda þar sem þau voru að gera að sárum hans Sigga) snemma kvölds og hittum við hann ekki fyrr daginn eftir. Hann vill enn ekki segja okkur hvar maðurinn var en þegar við hittum hann var bolurinn hans rifinn og buxurnar grænbrúnar og með sogblett á bringunni.

Svo vil ég nefna það að Helgi er loks farinn að byrja að mála herbergið þeirra Sigga og Lindu. Legg áherslu á að BYRJA!

Svo er náttúrulega alveg óþarfi að nefna það að ég lýg aldrei, ég kannski og þá KANNSKI skreyti sögu, en það er þá alltaf lítið og mjög sjaldan.

Svo er það hann Siggi, hann þarf að blogga fyrir klukkan 12 á sunnudagskvöldið 7. Okt. Annars fer hann tvo daga í röð niður á samlokustað og kaupir fyrir okkur kjúklinga special.

Andrés

Könnun

Í hvađa sćti á Manchester united eftir ađ lenta í

Atburđarteljari

Teljari

Gagnasafn