themansion.bloggar.is
Blogg líðandi stundar!!!The Mansion
Jæja núna sit ég hérna í pulsupartýi heima hjá Geira og komst að illu samsæri gegn mér! Já ég á að blogga fyrir miðnætti á laugardagskvöld og það er náttúrlega vitað mál að maður gleymir því og núna meðan ég er að skrifa, þá vantar tvo tíma í miðnætti og netið hjá Geira liggur niðri. En ég dey ekki ráðalaus og er að rita þessi orð inn í símann minn og sendi til Ármann í sms og hann setur þetta inn á síðuna fyrir mig...
Svindl?
Nei sjálfsbjargarviðleitni!!!
Annars hefur nú ekki mikið gerst undanfarna viku nema að Helgi fékk kast í Århusum inn í einhverri fatabúð og eyddi 60 þús. í föt og er núna komin í fasta vinnu við að betla niðrá göngugötu! Drési fékk sér loksins nýja skó og getum við loksins hent hinum gömlu illa lyktandi skóm hans út úr húsinu! Helgi er orðin svo latur við að þvo þvottinn sinn að hann er farinn að fá lánaðar hjá mér nærbuxur, jebs i kid you not akkurat núna er hann í nærbuxum af mér! Svo ætla ég bara að lýsa því sem er að gerst hérna núna Hann Drési er hérna veltandi um í hláturskasti því hann heldur að ég sé að klikka á blogginu og sé bara að skrifa ósköp venjulegt sms en sá verður hissa þegar hann kíkir á bloggið á morgun! Helgi er hérna bara eins og venjulega að móðga fólk, var að enda við að segja við strák hérna "BÍDDU ERU ÞETTA SVONA BUXUR SEM EIGA AÐ LÁTA SLÁTRIÐ VIRKA STÆRRA? ÚR BÚXUR!!" Já hann er drukkin dúllan okkar!! Siggi er komin upp á borð rokkandi við queen á meðan Helgi er að reyna að ná honum úr buxunum. Drési var að jafna sig á hláturskrampanum og er að berjast við Helga þar sem hann er að reyna að ná honum úr buxunum. Stjáni gítarleikari var að koma í hús og helgi er að reyna að taka hann úr buxunum, Helgi er núna að klæða sjálfan sig úr buxunum og öskrar "HEY ALLIR GEÐVEIKT SNIÐUGT FÖRUM ALLIR ÚR BUXUNUM!!! KÍÍÍJA" Jæja ég held að það sé best að ég fari og klappi strákunum á bakið þar sem þeir náðu mér næstum því!!
Helgi þjónar okkur í þrjá daga ef hann bloggar ekki fyrir miðnætti fimmtudags!
LATER JÓI BJARNI.
PS. Tek að mér að skrifa blogg í neyð gegn góðri þóknun Ármann
Ýkjur eða engar ýkjur!!??The Mansion
Ég er svona búinn að vera velta því fyrir mér í kvöld hvort ég ætti að krydda færsluna í kvöld. Og ég hef komist að þeirri niðurstöðu að ég ætla EKKI að ýkja í þetta skiptið.
Jæja hvar á ég að byrja.....
Það virðist fylgja því að þegar einhver einstaklingur (og þá í kringum okkur vitleysingana sérstaklega) eigi stórafmæli þá upplifir sá hinn sami mikil svik og lygar vikuna fyrir afmælið sjálft. Jói er engin undantekning þar.
Þetta byrjaði fyrir svona 10 dögum síðan þegar lítill fugl (OK kannski ekki fugl en þið skiljið mig) kom til mín og sagði mér ill áform hans jóa. Hingað til hefur ríkt hljóðlaust vopnahlé milli okkar félagana. Þannig að ég tók mig bara til og sneri hrekknum yfir á bossastrákinn. Og það má segja sem svo að kallinn var ekki sáttur við litla vin minn sem kom mér til hjálpar.

Þegar leið á vikuna komu upp fleiri svik og prettir upp á yfirborðið. Ég og Siggi kallinn tókum okkur til og keyptum blóm, kort, límmiða og kanil. Fórum síðan upp í skóla og í stofuna hans jóa. Við límdum á borðið hans og dreifðum rósum um borðið hans. Dreifum síðan 8 pokum af kanil vítt og breitt um stofuna fyrir bekkjarfélaga hans.
Þetta heppnaðist betur en við þorðum að vona. Kallinn mætir nefnilega soldið seint og þarf því að setjast niður í stól sinn í grafarþögn. Því allir biðu eftir því að hann myndi lesa hvað stæði í kortinu hans. Kennarinn hætti meira að segja að kenna og bað hann að lesa það upphátt fyrir bekkinn. Kallinn grunaði okkur stráka strax en fékk efasemdir eftir að við sýndum fram á framúrskarandi sakleysisleik. Því næst fór bekkurinn út í eitthvað verkefni og þar beið allur bekkurinn hans eftir honum með alla kanilpokana og sturtuðu því yfir hann. JEBB hann var





TEKINN!!
En þetta var nú bara gert í tilefni af afmæli hans, og vil ég því óska honum til hamingju með það að hafa lifað svona lengi....
En afmælið hans Jóa var haldið á laugardaginn. Við tókum því til í The Mansion bar og héldum þetta svakalega teiti. Ýmislegt var nú gert og sagt í þessu svalli. Helgi tók sig til og fór í keppni við Lindu um hvort gæti móðgað fleira lið um kvöldið. Linda tók þessu ekki eins alvarlega og hann Helgi en hann rústaði þessari keppni. Ég fer ekki alveg nákvæmt í það hvað hann sagði en það var einhvern veginn á þessa leið:
Móðgun nr1:
"Sæl, ég er svo heitur, má ég ekki taka kallinn út og slá honum í ennið á þér? já ég segi úr búxur!!"
Móðgun nr 2
Var hann að tala við stelpu sem var eilítið eldri en hann og spurði "Ert þú ein af þessum stelpum sem eru ungar en líta út fyrir að vera miklu eldri vegna þess að þú ert með hrukkur? Úr búxur!"
Móðgun nr3
Stjáni félagi okkar var kominn á sviðið okkar að taka nokkur lög. Þar áður vorum við að hlusta á nokkra iPoda. Kemur kallinn allt einu að horninu þar sem iPodarnir voru og segir vel upphátt: "Djöfull er þetta helvíti falskt" og ætlar sér síðan að "skipta" um lag á iPodnum þegar hann áttar sig á því að engin iPod var tengdur.
Já hann er snillingur þessi dúlla!
Siggi var síðan orðinn svo fullur að hann var farinn að röfla við spegilmyndina sína inn á baði. Það þurfti langan tíma til að útskýra fyrir honum hvar hann væri og við hvern hann var að tala. Jói var kominn með bindið sitt um hausinn á sér dansandi eins og vitleysingur, en það asnalega við það er að hann gekk með slaufu það kvöld.
Daginn eftir var umstangið hér heima eins og við hefðum gleymt útidyrahurðinni eftir opna og villt svínahjörð hefði komið inn hlaupandi. Hef aldrei séð annað eins. En björtu hliðarnar eru þær að við höfum fengið að heyra að stemmningin sem var hér svipaðist við pöbbarfíling. Og betra hrós gátum við ekki fengið.
Svo er með hann rúsinubolluna hann helga að eftir 2 daga fyllirí þá getur hann ekki sofnað sunnudagsnóttina. Hann hefur prófað allar aðferðir. Held að það hafi verið toppað í gærnótt. En ég vaknaði svona um 4 leytið við einhvern umgang frammi. Síðan heyri ég allt í einu "KÍJA" og svo er eins og einhver fari hlaupandi yfir gólfið og mikinn bassaþynk. Stuttu eftir það heyri ég mikil læti eins og þegar fullur poki af kartöflum dettur á gólf. Ég kíki fram en sé ekkert, kíki því inn í herbergi hans helga og þar sé hann liggjandi á gólfinu. Þar hafði hann appelsínugult band af turtlesbúning utan um hausinn. Þegar hann tók eftir mér sagði hann:"Ég get ekki sofið"
Jæja, ég verð að hætta. Það hefur farið rúmlega klukkutími i þessa færslu. Hún er löng ég veit, en margt hefur gerst á nokkrum dögum. Og munið hvað stóð efst á færslunni. Engar ýkjur.
Nú skora ég á hann Jóa að koma með færslu fyrir miðnæti á laugardaginn annars eldar hann án hjálpar 3 kvöld í röð.
Andrés Þór
Viðbót: það eru komnar in myndir úr afmælispartyinu og eru þær hér.. það koma inn fleyri myndir á næstu dögum

TEKINN!!
En þetta var nú bara gert í tilefni af afmæli hans, og vil ég því óska honum til hamingju með það að hafa lifað svona lengi....
En afmælið hans Jóa var haldið á laugardaginn. Við tókum því til í The Mansion bar og héldum þetta svakalega teiti. Ýmislegt var nú gert og sagt í þessu svalli. Helgi tók sig til og fór í keppni við Lindu um hvort gæti móðgað fleira lið um kvöldið. Linda tók þessu ekki eins alvarlega og hann Helgi en hann rústaði þessari keppni. Ég fer ekki alveg nákvæmt í það hvað hann sagði en það var einhvern veginn á þessa leið:
Móðgun nr1:
"Sæl, ég er svo heitur, má ég ekki taka kallinn út og slá honum í ennið á þér? já ég segi úr búxur!!"
Móðgun nr 2
Var hann að tala við stelpu sem var eilítið eldri en hann og spurði "Ert þú ein af þessum stelpum sem eru ungar en líta út fyrir að vera miklu eldri vegna þess að þú ert með hrukkur? Úr búxur!"
Móðgun nr3
Stjáni félagi okkar var kominn á sviðið okkar að taka nokkur lög. Þar áður vorum við að hlusta á nokkra iPoda. Kemur kallinn allt einu að horninu þar sem iPodarnir voru og segir vel upphátt: "Djöfull er þetta helvíti falskt" og ætlar sér síðan að "skipta" um lag á iPodnum þegar hann áttar sig á því að engin iPod var tengdur.
Já hann er snillingur þessi dúlla!
Daginn eftir var umstangið hér heima eins og við hefðum gleymt útidyrahurðinni eftir opna og villt svínahjörð hefði komið inn hlaupandi. Hef aldrei séð annað eins. En björtu hliðarnar eru þær að við höfum fengið að heyra að stemmningin sem var hér svipaðist við pöbbarfíling. Og betra hrós gátum við ekki fengið.
Svo er með hann rúsinubolluna hann helga að eftir 2 daga fyllirí þá getur hann ekki sofnað sunnudagsnóttina. Hann hefur prófað allar aðferðir. Held að það hafi verið toppað í gærnótt. En ég vaknaði svona um 4 leytið við einhvern umgang frammi. Síðan heyri ég allt í einu "KÍJA" og svo er eins og einhver fari hlaupandi yfir gólfið og mikinn bassaþynk. Stuttu eftir það heyri ég mikil læti eins og þegar fullur poki af kartöflum dettur á gólf. Ég kíki fram en sé ekkert, kíki því inn í herbergi hans helga og þar sé hann liggjandi á gólfinu. Þar hafði hann appelsínugult band af turtlesbúning utan um hausinn. Þegar hann tók eftir mér sagði hann:"Ég get ekki sofið"
Jæja, ég verð að hætta. Það hefur farið rúmlega klukkutími i þessa færslu. Hún er löng ég veit, en margt hefur gerst á nokkrum dögum. Og munið hvað stóð efst á færslunni. Engar ýkjur.
Nú skora ég á hann Jóa að koma með færslu fyrir miðnæti á laugardaginn annars eldar hann án hjálpar 3 kvöld í röð.
Andrés Þór
Viðbót: það eru komnar in myndir úr afmælispartyinu og eru þær hér.. það koma inn fleyri myndir á næstu dögum
Köben baby yeahThe Mansion
Já nei nei, ekki þríf ég herbergið hans jóa. Það er ýmislegt á lífi þarna í þessari kompu. Maður þarf virkilega að vera í vondum málum ef maður hættir sér þangað inn!!Það er búið að gerast margir og sniðugir hlutir frá síðustu færslu. Siggi er búinn að vera on fire í comeback múvunum sínum, eða heldur hann allavega! Það er ekki talandi við manninn því hvað sem maður segir við hann breytir hann því í móður manns. Eins og rétt áðan
Helgi: hey siggi ertu til í að rétta mér kók
Siggi: mamma þín er kók
Helgi: ok, en hvað er linda að gera í dag
Siggi: mamma þín er linda
Helgi: nei mamma mín heitir inga
Siggi: mamma þín er inga
Helgi: ég veit
Siggi: mamma þín er ég veit
Svona eru umræðurnar við sigga búnar að vera undanfarna daga. Mjög fræðandi og skemmtilegar samræður.
Ég get nú ekki annað sagt en að ég er virkilega stoltur af okkur strákunum. Vanalega þegar við höfum farið á Cafe Koks á fimmtudögum hefur það alltaf endað eins
Drési: Endar alltaf eins. Inn á klósti ælandi og skríður alltaf heim þegar hann byrjaður að fara á trúnó við bjórglasið sitt.
Siggi: Endar alltaf eins. Á koks eru nottla allra þjóða kvikindi svo hann er búinn að vera æfa sig í mömmu dótinu á hinum ýmsu málum : Mamma þín, Din mor, Your momma, deine mutten kleine sie bitte, ding dong dei og fleira og fleira.
Jói: Endar alltaf eins. Ja herna hvar á maður að byrja á þessum gaur.
Helgi: endar alltaf eins. Ég þarf að hætta að drekka til að hafa vit fyrir strákunum þar sem þeir eru allir ofurölvar eða reyna stofna til slagsmála
En aðalmálið með fimmtudaginn var að ég, drési og siggi fórum á koks og fengum okkur 2 bjóra og fórum síðan HEIM, fyrir miðnætti!!! Yes its true. Jói var lengur en hann drakk ekki sopa af bjór (ég veit, þetta hljómar fáranlega, en þetta er satt).
Á föstudeginum skelltum ég og jói okkur til köben og ætluðum að gera allt vitlaust þar á bæ. Hobo fór til magga, bigga og gengis og ég fór til lindu frænku.
Á laugardeginum kom hann drési okkar til köben. Ég, drési og linda frænka ákváðum að tylla okkur á bar og fá okkur kakó glas, og horfa á gífurlega skemmtilegan fótboltaleik. Svo var okkur boðið í mat hjá vinkonu lindu sem var frekar skondið því að drési gat varla setið á stólnum sínum hann hló svo mikið. Á meðan var jói á einhvers konar ráðstefnu sem eru víst gerðar fyrir það eitt að láta karlkynið vera vandræðalegt þarna og ganga með hann beinstífan alla ráðstefnuna. En ég og drési vorum mjög ánægðir með úrslitin, en þá byrjaði það að drésa finnst mjög merkilegt ef einhverjir eru frá öðru landi heldur en íslandi eða danmörku.
Drési: hi i am D-Dog, yes i wrote the lyrics in the song on kvikmynd.is called why must i cry
Dude: hi i am from australia
Drési: Ok, i love new york, u have many machines there
Og þið vitið hvernig þessi saga endar, alltaf eins hjá greyi keflvíkingunum. En þetta var ekki eina skiptið þetta kvöld. Við tókum leigubíl til magga og bigga og þar kom í ljós að leigubílsstjórinn var frá pakistan og á tímabili var ég ekki viss hvort drési væri að reyna kyssa hann eða hvort hann var orðinn svona fullur að hann sá ekki manninn. Allavega var góður hálftíma sleikur hjá þeim félögum þarna. Svo eftir dágóða stund hjá þeim félögum skellti ég mér í partý með lindsu frænku og ætlaði að hitta strákana seinna um kvöldið en nei nei kvöldið fór í það hjá þeim að þeir sáu eitthverja voða flotta diskókúlu á einhverjum skemmtistað, og voru allt kvöldið að gera svona oceans 11 plön að ræna kúlunni. Plönin voru víst rosaleg því þau snérust um það að :
1. Jói á að lappa að barnum
2. Andrés á að dansa ekki tala við útlendinga
3. Jói segir hæ við barstelpuna
4. Andrés á horfa til hægri og reyna stofna til kúrekadans
5. Jói brosir til barstelpunnar
6. Andrés byrjar á kúrekadansinum
7. Jói spyr kvennsu hvort hann megi koma bakvið með henni, hann vilji sýna henni soldið sniðugt sem hann væri með vasanum
8. Andrés byrjar að taka fleiri spor horfa til vinstri
9. Jói rotar stelpuna og slær út rafmagninu
10. Andrés hoppar og rífur diskókúluna niður
11. Þeir félagar hlaupa saman út.
En allt kom fyrir ekki að þetta klikkaði strax þegar jói átti að heilsa stelpunni en drési var kominn alveg með 3-4 manneskjur í línudans.
Þetta er kannski smá öðruvísi heldur en upprunalega planið, en svona hljóðaði þetta eitthvern megin (ef eitthver trúir mér þá er þetta satt)
Ég skora á drésa að skrifa á mánudagskvöld fyrir miðnætti annars þarf hann að elda fyrir okkur nautasteik!!!!
Vh Helgi Páll
Ekki vil ég Elda í viku!!!!The Mansion
Sko núna segi ég bara hvar á ég að byrja???Vitleisan sem Helgi og Drési taka uppá er alveg hreint ótrúlegt..
Svo ég byrja bara á fyrsta degi frá síðustu blogfærslu...
Föstudagur:
Skólabarinn er að opna á ný og fær nýtt nafn og heitir “Plan-B” það er ókeypis bjór fyrstu tímana og ég (jói) fer þangað með honum Ármanni og við tillum okkur þarna til að slaka aðeins á eftir að hafa átt erfiðan dag þar sem við sváfum út því hjá okkur var frí þennan morgun. Þegar við höfðum setið þarna í ca. 1 klst. Þá heyrum við þvílík læti á barnum, einskonar viðvörurnar bjalla og ljós fara í gang. Barþjónnin biður alla sem standa að setjast niður strax því það væri hætta á ferð. Ég og ármann skildum ekki upp né niður í þessu og litum á hvorn annan alveg gáttaðir, svo hélt barþjónnin áfram..
“OK EVERYBODY HOLD TIGHT TO YOUR DRINKS THEY ARE COMMING”
Og við þorðum ekki öðru en að herða takið á bjórnum okkar
Barþ. “OHH NOO THEY ARE HERE”
Og inn labba Helgi, Drési og Siggi, þeir skella sér beint á barinn og byrja að þamba bjórin eins og hann væri vatn.. Helgi varð svo fullur að hann stökk uppá sviðið hjá trúbadornum og fór að dansa eins og tellytubbies, reif svo micin af standinum og fór að syngja.. (hann tapaði sko veðmáli fyrr um kvöldið þurfti því að gera þetta) svo þegar hann var búin að syngja í ca. 5 sek þá fór hann að stama eða meira hiksta líklegsat vegna drykkju og fólk fór svona að flissa smá af honum þetta var nú anski skondið. En helgi deyr nú ekki ráðarlaus og til að bjarga sér úr vandræðaheitunum þá segir hann.. “OKEY EVERYBODY LISTEN!!! THERE IS A PARTY AT THE MANSION BAR” Svo þuldi hann upp heimilisfangið heim til okkar og steig svo niður af sviðinu stoltur af sjálfum sér.. Svo var drifið sig heim og hvað haldiði að hafi gerst jeps þetta uppátæki hjá honum helga hreinlega stút fyllti húsið eins og þið sjáið. En þetta er bara svona 1/8 af fólkinu sem var heima..

Svo var Helgi út um allt að fleygja flöskum og segja fólki að það mætti brjóta flöskurnar á The Mansion Bar hehe þessi DÚLLA..
Laugardagur:
Þessi dagur fór nú að mestu í þynku og það að þrýfa eftir partyið hans Helga kvöldið áður þar sem það voru glerbrot og annað slíkt út um allt!!! Svo Bauð hann Ármann okkur í mat um kvöldið og ákváðum við að spila eftir matinn en þetta spil það reyndi svo mikið á hann Helga að hann ákvað að leggjast á gólfið og fara að sofa hjá hundinum og þarna var hann búin að sofa í ca. 2 tíma þegar þetta video var tekið en hundurinn þoldi ekki hroturnar í honum svo hann var farin..
Sunnudagur:
Þynka!!!!!!!!
Mánudagur:
Hann Helgi ætlar að sýna taktana sína í eldhúsinu og eldar þessa flottu máltíð (vitum ekki ennþá hvaðan hráefnið kom þar sem ísskápurinn er tómur en grunum að hann hafi farið í ruslatunnuna fyrir utan) fyrir sig og Drésa. Síðan þá eru þeir búnir að vera að kvarta yfir magaverkjum og flökurleika. Ekki má gleyma því að þeir eru ekki búnir að skíta síðan og vill Drési meina að þeir séu komnir með þarmastíflu..
Þriðjudagur:
Drésa skellti sér á bocha æfingu á þriðjudaginn og í fyrsta kasti þá fleigði hann kúlunni beint upp í loftið og hún endaði beint á enninu á honum og fyrir vikið þá fékk hann þennan rosa skurð þvert yfir ennið heil 2 spor!! Ég þurfti að keyra honum á sjúkrahús þar sem hann dvaldi í 4 tíma því læknarnir þurftu að elta hann út um allt sjúkrahús þar sem hann er svo hræddur við sprautur kallinn..

Það ótrúlega við þessa færslu er að hún er ekki ýkt ég hreinlega þorði ekki að ýkja því þá myndi engin trúa þessu en svona eru þessar dúllur bara....
Helgi bloggaðu fyrir miðnætti miðvikudags eða lagaðu til í herberginu mínu!!

Jói Bjarni
Klósettið er HREINT!!!The Mansion
Dúllurassgatið hún Linda tók sig til hérna um daginn og tók Mansionið í gegn. Hún kíkti í heimsókn og fékk vægt sjokk. En það var ekki fyrr en hún kom inn í ruslakompuna hans Helga sem hún sagði: NEI!!!!!! THE HORROR!!!! Og greip burstan og hanskana og þreif pleisið! Og klósettið! Við sjáum spegilmynd af okkur núna þegar við notum það (sem í sjálfu sér er kannski ekki svo rétt eitthvað) Þannig að hvatinn til þess að blogga er horfinn, eeeen, við búum bara til einhvern annan hvata.
Jói hefur verið frekar afbrýðissamur út í okkur snillingana á annarri önn. Þar sem við erum svo mikið framtíðarefni þá hefur okkur verið úthlutað kennslustofu með öllu rafrænu á meðan hann situr í sinni stofu með ónýtan stól og lítið borð. Hann situr svo aftarlega að hann notar kíki og hlustunarpípu til þess að fylgjast með í tíma. Greyið kallinn segi ég bara. Finn til með honum þegar hann setur upp skjöldinn og actar sig kúl. En ég heyri í honum stundum á kvöldin röflandi við hann Ármann í símanum hvers vegna við fáum svona mega stofu en ekki hann.
Siggi kallinn hefur verið eins og fram kom hjá Helga frekar veikur undanfarna daga. Sem og Linda. En kallinn missti af einni viku og þurfti því að setjast aftast í yndislegu stofunni okkar. En það kom ekki að sök því að stofan okkar er svo frábær að lítil sjónvörp poppa upp í borðunum fyrir þá sem sjá illa upp á töflu. Kallinn er þó ekki enn búinn að jafna sig og hóstar og gleypir lifrinni sinni af og til.
Helgi kallinn hefur verið að væla út af hnénu sínu síðan hann kom til Danmerkur. Fékk okkur alla til þess að vorkenna honum og stjana við hann. Það sem maður er búinn að gera fyrir þennan dreng undanfarna 2 vikur er í raun ekki hægt skrifa hérna niður. Það gæti verið að einhver börn lesi þetta. Við erum of tramaticed til þess að hugsa meir um það!!!
Kallinn hefur þóst eiga shotgunnið út af því að hann geti ekki beygt hné sitt og það sé of þröngt fyrir hann aftur í. En síðan fer kallinn á ball og lendir á séns, og þá er allt í lagi með kallinn. Hann tekur flipp og snýr gellunni í hring (svona eins og unglingamyndirnar í denn þegar söguhetjan tekur dansmovin og gellan er eins og dúkka sem hann fleygir hingað og þangað) rennur sér á gólfinu og tekur orminn!! Já, hann situr þessa dagana afturí.
En við förum þá varlega með kallinn. Komum honum vel fyrir þarna afturí og spennum á hann beltið. Það er ekki eins og við séum einhver skrímsli.
En annars þá er ég fínn. Fyrir utan að ég fæ ábyggilega aldrei vinnu hér í Danmörku í smíðum þá held ég að sé bara fínn.
Nú skora ég á hann Jóa að koma með blogg fyrir miðnæti á fimmtudag, annars eldar hann á hverju kvöldi í viku!
Andrés Þór
Okkur finnst bjórinn ekki vondurThe Mansion
Já svei mér þá, bloggmeistarinn er mættur aftur. Maður verður að taka skoruninni því ekki ætla ég að þrífa fjandans klóstið. Drési er búinn að vera frussuprumpa í allan dag og þótt að ég vilji ekkert vera leiðinlegur við hann, þá lyktar kúkurinn hans ekkert voðalega vel. Ekki eins og ávaxtalyktin sem kemur úr mínum litla bossa.Jæja nóg um drésa. Ótrúlegt en satt þá duttum við bakkabræður (-siggi því er veikur kúturinn með kláða á skrýtnum stöðum) í það tvisvar um helgina og ekki hefur það gerst í langan tíma. Það byrjaði þannig að góðvinkona okkur hún Dilja hringdi í mig á föstudaginn og sagði að henni langaði í bjór á skólabarnum. Hann sindri hennar var fullur í einhverri ferð blindfullur kyssandi karlmenn sem mér finnst ekkert sniðugt. En nóg um framhjáhaldið hans sindra. Svo við dúllurnar hugsuðu okkur ekki tvisvar um að fá sér öl. Jói var meira segja það æstur að hann fékk það smá, þarf víst ekki mikið til þessa dagana. Við fórum á skólabarinn settumst niður og drukkum marga metra (MARGA (10 stykki í meter)). En þegar jói var byrjaður að nudda sér óþægilega mikið við súlu, ákváðum við, jæja best að fara í bæinn og athuga með kvenfang fyrir jójó. Er komið var inn á koks sá þessa rosalega kínverska skutlu, og ég sagði við jóa að reyna við þessa, hún væri ekkert verri manneskja þótt hún væri kínversk. Jói ákvað að slá til en var mjög stressaður og ég var svo heppinn að heyra þessa samræður
Jói: hihi my name is jói and i have penis
Dingdongdei: yes i can see that, very big, i like
Jói: yes i know, i train allot, do u have also
Dingdongdei: nono not anymore, do u maybe wanna come on a date with me sometime
Jói(orðinn mjög stressaður): I go to school in horsens, do u have a mother
Dingdongdei: yes she lives in china, what about a date
Jói: yes sometimes i copy papers in school, i shit u not, it is amazing how these machines works
Dingdongdei: U are so crazy in head, i like very much, my apartment is not far away from here, do wanna come to my apartment and have a beer
Jói: do know u know, it is very cold in iceland now, yes i was working outside the other day
Og svona hélt þetta áfram og endaði þetta með vökvatapi og svima hjá jóa svo þetta klikkaði hjá honum. En hann er allur að koma til strákurinn.
Svo var alls ekki leiðinlegt í gær, þorrablót íslendingafélagsins átti sér stað og við krúttin mættum þarna í glæsilegum smókingum og vorum við ekkert smá sætir. Sérstaklega ég. Kvennþjóðin átti erfitt með sig stundum og lét okkur ekki í friði. Drési á víst auðvelt með að stressast upp eins og jói. Það var þannig að drési frétti af manni þarna sem á byggingarfyrirtæki og ætlaði drési að spyrja hann hvort hann gæti fengið vinnu hjá honum
Drési: hæ ég heiti drési og pabbi minn kann að smíða
Maðurinn: já það er flott, ég er stoltur af þér
Drési: takk ég er líka soldið klár og kærastan mín segir að ég sé mjög góður í rúminu
Maðurinn: já ok, gott að vita
Drési: þú byggir mikið, ég hef séð margar byggingar
Maðurinn: já maður reynir að smíða smá svona öðru hvoru
Drési: ég veit hvernig hamar lítur út
Svona hélt þetta áfram þangað til að þetta endaði með svima og vökvatapi hjá greyi drésa.
En annars var ballið bara helvíti skemmtilegt. Ég var búinn að lofa sjálfum mér að muna eftir meira en í fyrra, og tókst það því núna man ég eftir matnum
En svo að klósettdótið helst áfram skora ég á drésa að blogga í lok vikunnar
Helgi Páll
Styttis í ÞORRABLÓTIÐThe Mansion
Jæja þá erum við komnir út aftur og skólinn komin á fullt en það sem skiptir mestu máli þessa dagana er að ÞORRABLÓTIÐ er á laugardaginn en eins og venjan hefur verið hjá okkur þá er þorrablótið eitt skemmtilegasta djamm ársins og eru allltaf margar svaðalegar sögur að segja eftir þetta party..td. á síðasta ári þá tók helgi sig til og slasaði allt og alla þetta kvöld fólk kom heim til sín með skurði á hnjánum, höndum og andlitum og ekki má gleyma því að engin kom heim í helum fötum þau voru annaðhvort rifin og tætt eða öll í blóði..
og er stefnan sett á eitt svaðalegasta kvöld í sögu djamms í Danmörku á laugardaginn og verða teknar tonn af myndum og troðið hérna inná síðuna..
en ég var bara komin með leið á hinni færsluni og skora ég hér á hann Helga að blogga á sunnudaginn eftir þorrablótið því það verður nóg að segja..
kv. Jói Bjarna
UPDATEThe Mansion
JÆJA Það hefur margt gengið á síðastliðna daga.. HELGI, DRÉSI OG SIGGI kláruðu sín próf síðasta þriðjudag og litu svona út um kvöldið alveg blindfullir og settu myndavelina á timer, svona eru þessar dúllur sniðugar...
En þegar þessu fjöri var lokið þá héldu þeir niður í bæ og ætluðu að kíkjá á lífið því þeir heyrðu að það væri mikið um SÆTAR STÚLKUR á þriðjudagskvöldum niðrí bæ, og það sem þeir fundu var... þetta...

þegar þeir litu augum á þessar YNDISMEYJAR þá datt alveg af þeim andlitið og þeir ákváðu að ætla að vera SVALIR og gefa þessum sætu stúlkum THE MANSION LOOK .. .. sem klikkar aldrei..

og eins og allir vita þá VANALEGA dugar að taka THE MANSION LOOK.. en í þessu tilfelli þá tókst það ekki svo drengirnir okkar voru ekki SÁTTIR og HRAUNUÐU yfir þessar gellur... kölluðu þær MERKIKERTIi og að þær voru bara HEIMSKAR og VITLAUSAR að falla ekki fyrir svona folum eins og þeir eru svo eru þeir líka í TÆKNIHÁSKÓLA!!!!!
en þeir ákváðu bara að hrynja all verulega í það eins og að það væri enginn morgundagur og byrjuðu að taka hvert staupið og bonguna á fætur annari svo ekki leið á löngu þar til að þeir voru svo út úr heiminum að þeir vöknuðu allir uppí sama rúmi daginn eftir... þeir vilja ekkert segja mér hvað gekk þar á en allavega þetta var það eina sem ég fékk upp úr þeim.. En eftir mikla drykkju þá fylgir mikil ÞYNKA og leið þeim einhvernvegin svona...

Og auðvitað sögðu þeir að þeir ætluðu ALDREI AÐ DREKKA AFTUR en það höfum við heyrt svo oft frá þessum rúsínum.. annars vil ég nota tækifærið til að Óska þeim til hamingju með að vera búnir í prófunum og hafa lagt mikið á sig í að læra undir þau svo þeir áttu þetta fyllirí alveg vel skilið..
en út í aðra sálma þá kíkti ég í Afmæli til hans Halla á Laugardaginn síðasta og var það bara svona rosalega gaman Hann Halli hefur lengi verið að skora á mig í hólmgöngu og tók ég loks áskoruni þetta ver rosalegur bardagi og náðist ein mynd af honum en þetta var eina myndin sem náðist þar sem lætin voru svo mikil að allar myndavelar og annað brothætt hreinlega bara brotnaði og skemmdist en þetta er myndin..

þarna er hann halli að stinga mig í magan en ég svaraði honum með því að skera í eyrað á honum en þið vitið líklegast hvernin fór þar sem ég er hérna að skrifa póstinn.. :)
en annars vil ég þakka honum halla fyrir frábært party og svaðalega bollu..
óver and át
Jói Bjarna
Það ríkir mikil sorg á The MansionThe Mansion
jæja maður vill nú bara byrja þessa færslu á að óska ykkur gleðilegra hátíðir og það allt saman. þessi jól hafa verið einstaklega skemmtileg og viðburðarrík.Þessa dagana höfum við það rosalega erfitt, við förum varla útur húsi vegna bólgunar í andlitum útaf miklum gráti. Þessi grátur er óstöðvandi en maður bara vonar að þetta komi með tímanum. Ástæða grátsins er tvískipt, ein ástæðan er fyrir að einn úr Vados Logos, the mansion hópnum, hefur ákveðið að flytja til íslands. Það er hann ástarbossinn minn hann Haraldur Óli (aka leonardo, fagget ass Chauncey, wannabe seagal, I use jói's sofa like I own it). Hans verður gífurlega sárt saknað hér á the mansion og hefur komið upp sú umræða að flytja allir heim til íslands og finna okkur hús þar saman. Halli við söknum þín ( og þú varst búinn að lofa mér að koma til mín í hverri viku að heimsækja mig, JÚDAS). Hin ástæða fyrir grátinum er hún yndisfagra Sigríður (aka systa, splinter, splína, spyrillinn, corfitz gellan, I use jói's sofa like I own it). Hún það var skapaði þetta fallega andrúmsloft hérna á the mansion með hreingerningum sínum, þvottasnilli sinni og að spyrja mikið. Hennar verður sárt saknað. Enda sést það strax þegar afgreiðslufólkið á Corfitz spyr hvort Systa og Linda hafi lent einhverju hræðilegu því staðurinn er að fara á hausinn eftir þið hættuð að mæta þarna. Ja það er mikil sorg hérna þessa dagana, en við komust yfir þetta eftir þetta ár.
Smá tribute hérna fyrir halla og systu set ég smá myndasíðu með svona það besta sem gerst hefur hérna í DK.
Já og ekki má gleyma að þann 30 des hittust the mansion hópurinn heima hjá systu. Þetta byrjaði svona í rólegri kantinum, en er leið á kvöldið, úff úff úff úff. Fólk var rúllandi. Halli var farinn heim kl 23, Systa þurftir að halda á honum svo hún fór líka. Siggi dansaði eins og hann ætti ekki annað eftir. Var byrjaður að taka systuna á þetta, dansandi ber að neðan. Andrés var inná 11 að taka armbeygjur fyrir viðstadda. Jói hrundi í það seint að kveldi til, og sjá hann með skeggið þetta kveld. Hann var eins og ala achmed gaur dansandi um. Og ég að vanda,var ég hinn rólegasti, að passa upp á liðið og sjá til að þau geri sig ekki að fíflum, en erftt er það nú samt.
Kv Helgi Páll
Tap en samt ekki unninn...The Mansion
Mér hefur bara sjaldan eða aldrei liðið jafn vel og akkurat núna. Undanfarna daga hef ég fengið ýmis komment um aldur minn. Svo virðist vera að skeggið mitt hafi ýtt undir þá hugmynd að ég væri með aldur til þess að bjóða mig fram til forsetaembættis. Greyið mamma grét í dágóðan tíma þegar hún sá mig. Allt í einu áttaði hún sig á því að hún væri ekki lengur unglamb. Nokkrir vinnufélagar míniir gengu fram hjá mér( ég var víst eins og Pólverji) þeir hreinlega þekktu mig ekki. Og hef fengið of mikið af hári upp í mig.
ÞAAAAnnig að ég hef gefist upp og rakaði mig áðan. 57 dagar. Það er bara nokkuð gott (JÚ víst!!)Eitt vil ég þó segja, skeggið á honum jóa er mjög ljóst. Það sést ekki eins vel og því hefur hann pottþétt haft það betra.
Því er um að gera að óska jóa til hamingju með að halda lengur út en ég. Núna geturu hætt þessu væli og farið að raka þig með hreinni samvisku.
Seinna