themansion.bloggar.is
HjartahnoðThe Mansion
Sæl og blessuðVið höfum ákveðið að endurvekja síðuna á ný, þar sem þessi önn verður sú síðasta hjá okkur á Mansion.
Nú á næstu dögum munum við henda inn einhverjum færslum, og reyna svo að halda því við.
Þar til..... veriði blessuð
Projekt tímabilið byrjaðThe Mansion
Helgi og Siggi eru búnir að vera svo mikið að vinna saman núna í verkefninu sínu að þeir eru farnir að finna fyrir tilfinningum sem þeir hafa aldrei fundið fyrir áður.. Þeir leiðast á göngunum eins og ungt ástfangið par.. þeir drekka úr sama glasinu og nota sömu hnífapörin.. Svo heimta þeir að hinn skelli á þegar þeir tala í símann. Það var svo alvarlegt eitt skiptið að Helgi hringdi síðan aftur í Sigga og fór að segja honum hversu mikið hann saknaði hans.. HELGI HANN FÓR Á KLÓSETTIÐ!!En hérna er smá mynd af turtildúfunum og nýjasta parinu í skólanum og á The Mansion!

Later.. The Mansion Gang
Jójó á afmæliThe Mansion
Nei nei núna byrjar þetta af alvöru. Bloggið er komið aftur af stað og verður svoleiðis áfram svo lengi sem Siggi (aka DA FISHHHH), Andrés (aka DA ASIAN GAY LOVER) og Jói (aka DA INDIAN ASS LOVER) halda sig á mottunni og verða duglegir við að skrifa niður punkta af vitleysu Lindu (aka DA RUSSIAN MUSTACHE LOVER).Erfitt er nú að muna allt sem hefur gerst á seinustu mánuðum, sem við segjum nánast í hverju einasta bloggi.
En fyrst og fremst nefnum við tugþrautina sem við meðlimir THE MANSION erum að fara byrja á.
Flokkarnir eru eftirtaldir:
1. Pool 2. Fúzball 3. Gokart 4. Keilu 5. Körfubolti (one on one) 6. Fifa 2008 í PS3 7. Skvass 8. Skák 9. Þythokkí 10. Póker 11. Buzz í PS
12. Og svo kemur allra besta keppnin en það er drykkjukeppni. Reglurnar fyrir þá keppni verða þannig:
· Hver og einn kemur með minnst eina staupflösku
· Staup koma á 10 mín fresti og styttist tíminn sem líður á kvöldið
· Einn bjór verður líka að klárast á þessum 10 mín
· Það má semi-æla ef það fyllir meira 6,5 cl þá er maður búinn að tapa
· Það verður myndavél í gangi allan tímann, vegna blackoutum sem hinir fara alltaf í
Tugþrautin verður spiluð þannig að það verður ein keppni spiluð á hverri viku og veitt verða 0 stig fyrir seinasta sætið, 1 stig fyrir þriðja sætið, 2 stig fyrir annað sætið og 4 stig fyrir fyrsta sætið!!!!
Eitt sem er líka komið í gang hérna á Mansion er að við erum byrjaðir með tilraunir hérna. Ein á cirka 2 vikna fresti. Og hér er video af þeirri tilraun sem jói leiddi í ljós að hármissir í da púnaní getur komið vegna ofneyslu mentos og diet kóks....
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ JÓI!!!!!!!!!!!
Já auðvitað má maður ekki gleyma að hann Jói á afmæli í dag og erum við á leið út í búð að kaupa krydd sem gott er að hnerra af og jóa hlakkar geðveikt til þegar neðri hlutur sigga fer á leit þröngra og skítugra slóða.Já helgin var helvíti góð núna og sjaldan hef ég hlegið svona mikið. Semi afmæli/teiti mansion bar var á föstudaginn og á laugardaginn var ferðinni heitið til Vejle þar sem var fengin sér einn, jafnvel tveir bjórar í heimahúsum Svanhildar.
Það verður því miður smá tími í næsta blogg vegna páskafrís en þó aldrei að vita með að það gæti dottið inn blogg yfir páskana!!!!
en til að enda þessa bloggfærslu og vegna endurvakningu Da Mansions set ég mynd af hverjum og einum svo fólk muni eftir okkur
Jói er hann var í heimsókn hjá genginu í Ástralíu

Siggi í leik við föður sinn er hann var ungur fissí fissí

Drési eftir að hafa safnað sítt af aftan

ég á gæsaveiðum í víetnam í gamla daga! endaði í bjórnum eftir það!!
Kveðja Helgi Páll (aka Jean Claude Seagal)
The Mansion
Jæja best að fara segja sannleikann af þessum hálfvitum sem ég bý, ekki þið dúllurnar mínar(linda og halla), hinir vitleysingarnir (jóhanna guðm.(drési) og hafmeyju undirdjúpana hún sigríður).En eins og alltaf gerist alltaf mikið af skemmtilegum hlutum hérna á mansion og mikið frá að segja. Og hvað betra en að byrja með sögu um hafmeyju undirdjúpana (siggi tannlausi), og þetta er alveg satt, mamma hans og pabbi voru hérna í heimsókn og mamma hans sigga sagði okkur ekki leiðinlega sögu um sigurð. Þegar siggi var 3 ára gamall sagði mamma hans við hann að hann hefði verið keyptur sem yndælis ýsa á pönnuna í matinn, en svo daginn eftir var hann búinn að breytast í ungan ekkert voðalega fallegan dreng(þetta er satt og engar ýkjur núna), hehehe og þetta hélt maðurinn þangað til hann væri 8 ára gamall. Getiði ímyndað ykkur sigga, haldandi að hann væri fiskur!!!! Skatan hann siggi.

Siggi er hann var kominn á sjötta aldursárið

og hér er siggi í veiðiferð með pabba sínum, kominn á 9. Árið
Gengið (mínus jójó da hobo, kom í heimsókn og við stungum af daginn eftir(sorry jói)), og nokkrir vel valdir danskir pungar skelltum okkur til barcelona um daginn og ekki var það leiðinleg ferð. kannski í næsta bloggi verður drési búinn að redda myndum frá ferðinni, Nokkrir velvaldir punktar úr ferðinni :
· Ég fékk leiðindar hreðjartak frá frekar ófríðri hóru.
· Fiskurinn var blindfullur niður við höfnina í leit að gömlum vinum
· Drési tók veðmáli og dansaði einn út á dansgólfi í 5 mín og græddi aur á því, treystið mér þetta video verður komið á youtube eftir nokkra daga, dansandi einn samba á stóru diskóteki hleður að sér áhorfi, og aldrei að vita nema hann verði kominn í raunveruleikaþáttinn, Think u can dance.
Já svona er þetta alltaf í kringum okkur krakkana og fiskinn hérna á DA MANSION.
Linda okkar var hérna með heimsókn frá tveimur ungum hnátum, þeim Raquella og Huldmania, og voru þær með drykkjulæti að vanda, rústandi corfitz, og vá hvað þær eyðulögðu ágætis lag með að syngja það í annar hverri setningu sem þær sögðu : EINS OG TVÆÆÆR ÁSTFANGNNNNNAR FLUGGGVÉLLLLAR. Og þær ætluðu aldrei að hætta.
En já nenni ekki meira, finnst líka nóg fyrir fólk að melta þetta með hafmeyjuna
Drési blogga fyrir sunnudaginn annars eitthvað sniðugt sem þið eigið að commenta á.
Þangað til næst bless
Helgi Páll
Nonnabitinn er á leiðinni.The Mansion
Ég veit nú ekki hvað ég get sagt þar sem ég er ekki á staðnum eða semsagt á The Mansion svo í staðin þá mun ég bera saman nokkurnvegin lífið í dk og svo á ísl. :)Mánudagar í dk.
- Helgi byrjar daginn á því að kvarta yfir því að hafa ekkert sofið yfir nóttina vegna einhverns mánudagskvíða sem hann hefur alltaf frá fimmtudögum og framm að sunnudögum, svo kallin eyddi helginni með humla í hönd til að losna við kvíðann.
Svo eru allir morgnar svona ca:
- Siggi snúsar mig þegar ég reyni að vekja hann.
- Drési fer á klósettið.
- Siggi snúsar Helga þegar hann reynir að vekja hann.
- Helgi er orðin klár en samt alveg hellaður eftir svefnleysið.
- Drési er ennþá á klósettinu.
- Siggi snúsar Lindu þegar hún reynir að ýta honum frammúr.
- Ég er orðin klár og er að horfa á Helga furðulostin þar sem hann er fyrir utan að leika dúfu.
- Drési er ennþá á klósettinu.
- Ég næ loksins að vekja Sigga en stuttu seinna sofnar hann fyrir utan baðherbergið þar sem Drési er ennþá á klósettinu.
- Svo endar þetta allt á því að við erum saman syngjandi í bílnum á leið í skólann.
Mánudagar á Ís og allir aðrir morgnar.
- Ég vakna fer framm þá er búið að leggja á borð morgunmatinn.. (Sem er furðulegt helgi er hvergi nálægt.. ahh mútta)
- Ég fer á klósettið og bíddu það er ekki læst.. ahh Drési er í dk.
- rölti svo bara út og í vinnu án þess að vera snúsaður..
- og svo auðvitað góður kvöldmatur alltaf á kvöldin heima
Svo hvor er betra ringulreið á morgnana í dk eða rólegheit á ísl?? Ég verð nú bara að segja að ég myndi frekar kjósa ófyrirsjáanlega morgna með ykkur heldur en fastar venjur.
Annars er tölvan mín ónýt og myndi ég setja inn etthvað skemmtilegt video af lífinu þarna í dk en ekki hægt í bili.. geri það bara seinna.
En annars Helgi bloggaðu bara fyrir lok fimmtudags áður en Mánudagskvíðinn kikkar inn. :)
eða kannski frekar á nýja tungumálinu. kvak kvak kvakva, kvakk kvaaaakk kvakk. :)
MISS YOU GUYS (kvakk kva kvvaak)
Kv. Jói Bjarni
Helgi DúfaThe Mansion
Afsakið seinkunina þetta er ófyrirgefanlegt og þess vegna lofa ég að næsta blogg komi á réttum tíma En hvar á maður að byrja mikið er búið að gerast á þessum 2 vikum ég og drési erum búnir að vera upp í skóla að læra á fullu en helgi er búin að sitja á barnum og drekka mikið, En litli strákurinn á skilið klapp á bakið hann náði að klára að mála herbergið tók aðeins 3 vikur, eftir að hann byrjaði, annan eins málara hef ég aldrei séð ekkert smá fljótur að þessu enda vann hann sem málari í eitt sumar.Við fengum samt nett sjokk um daginn við vorum inni eldhúsi að elda allt i einu varð allt hljótt í 30 sek og allir sem þekkja Helga þá er aldrei hljótt í meira en 10 sek þegar maður er i kringum hann en allavega þá var hann uppiskroppa með hluti til að segja og lög til að syngja þannig maðurinn byrjaði að leika dúfu það er að segja labba um golfin með blakandi hendur og gagga eða hvað sem dúfur gera, stelpurnar skildu ekkert í þessu og heldu að þær voru komnar i actionary og byrjuðu að giska á allskonar fugla. En honum Helga fannst þetta svo rosalega skemmtilegt að leika dúfu að hann er farinn að fara niðrí bæ að angra túristina eins og sést á þessu myndbandi við vitum ekkert hvað við eigum að gera við strákinn þar sem hann vill ekki lengur fara úr búningnum.
Siðasti vika vorum við flest nú í útlöndum Andrés og Helgi fóru til íslands að vinna, ég og Linda fórum til Noregs sem var ágætt fyrir utan hvað normenn eru svo helvíti leiðinlegir. En greyið Halla var skilin eftir hér í horsens. Þannig það er ekki mikið að segja frá þeirri viku en næst langar mér að lesa blogg frá honum jóa og fá að vita hvað er að gerast hjá honum þannig ég segji að Jói þurfi að skrifa blogg fyrir næsta mánudag eða hann þarf að senda okkur vacum pakkaðan nonnabita innan 14 daga ef þetta klikkar hjá honum.
Ég komst í gírinn!The Mansion
Úfffffffffffff, hvað það er erfitt að koma sér aftur í þennan blogg fíling aftur. En staðreyndin er þó samt sú að vegna mikils áreitis verður maður bara að koma þessum reynslusögum út.
Ég get nú byrjað á því að segja ykkur að hin óskilgetnu börn hans helga eru 6 og 5 mánaða gömul í dag. Þessi maður er náttúrulega með útúrþrungin poka milli lappanna, að þegar eitthvað gerist hjá kallinum er ekki hjá því komist að eitthvað líf kvikni. En já, hann á sem sagt tvö afmæli í dag, hann veit bara ekki enn hvers vegna.
Helgi kallinn heldur því fram að hann hafi mikla hæfileika, sem felast í því að hann getur séð aftan á hnakkann sinn. Svo um daginn kallaði hann á okkur inn á bað til sýna fram á þennan ,,hæfileika“ . Nú kvóta ég hann: „Strákar sáiði, ef ég sný mér baki í spegillinn og sný mér nógu hratt nokkrum sinnum þá get ég talið hárin aftan á hnakkanum.“ Ég og siggi vorum bara: „HA!?“ , „ já sjáið!“ Svo sneri maðurinn hausnum sínum nokkrum sinnum og reyndi hann að telja hárin! Þetta var það sýrðasta sem ég hef séð á ævinni minni. Því ef þetta hefði verið grín þá hefðum við náttúrulega hlegið með manninum, eeeeen honum var fúlasta alvara. Núna þori ég ekki að ganga inn í herbergið hans af ótta við að hann reyni aðra hluti sem mönnum er ómögulegt að gera.
Fótboltamót Íslendingafélaganna í Danmörku var hér í Horsens um daginn. Við Helgi tókum þátt og vorum í bestu liðunum, en hann Siggi var ekki með. Kvartaði hann eitthvað út af hnénu hans, en enginn trúði því nú. Það er ekki til eitt vitni af því að maðurinn hafi slasað sig eitthvað. Sannleikurinn er bara sá að hann hafi slasað sig miðsvæðis aðeins ofar en hnén. Og skammaðist drengurinn sig of mikið til þess að leita sér hjálpar þannig að hann beið bara eftir Lindu sinni. Hún lét sig síðan sjá sig eftir mótið, þannig að allt gloríið féll í minn og Helga hlut, en þó aðallega minn. Þar sem mitt lið komst áfram í 8 liðaúrslitin! J Á ballinu síðar um kvöldið var mikið drukkið af hálfu Helga. Við týndum manninum (það er að segja allir nema Siggi og Linda þar sem þau voru að gera að sárum hans Sigga) snemma kvölds og hittum við hann ekki fyrr daginn eftir. Hann vill enn ekki segja okkur hvar maðurinn var en þegar við hittum hann var bolurinn hans rifinn og buxurnar grænbrúnar og með sogblett á bringunni.
Svo vil ég nefna það að Helgi er loks farinn að byrja að mála herbergið þeirra Sigga og Lindu. Legg áherslu á að BYRJA!
Svo er náttúrulega alveg óþarfi að nefna það að ég lýg aldrei, ég kannski og þá KANNSKI skreyti sögu, en það er þá alltaf lítið og mjög sjaldan.
Svo er það hann Siggi, hann þarf að blogga fyrir klukkan 12 á sunnudagskvöldið 7. Okt. Annars fer hann tvo daga í röð niður á samlokustað og kaupir fyrir okkur kjúklinga special.
Andrés
Ný færsla kemur á næstu dögum en...The Mansion
ÞAÐ VERÐUR SVAKA PARTY Á THE MANSION Í KVÖLD.. VIÐ ERUM BÚNIR AÐ FYLLA BARINN AF ÁFENGI OG ÖLLU ÞVÍ BLANDI SEM ÞÚ GETUR HUGSAÐ ÞÉR...
DRYKKURINN KOSTAR 10 KRÓNUR OG MEÐ FYRSTA DRYKK FYLGIR EINN FEITUR VINDILL!!
EIN EFNILEGASTI DJ. ÍSLANDS VERÐUR Á STAÐNUM OG MUN SPILA MÚSÍK LANGT FRAM EFTIR NÓTTU..
CRAZY DAIZY HVAÐ???
BE THERE EÐA VERTU FERHYRNINGUR!!!!
Eitthvað verður að skrifaThe Mansion
jæja þegar kommentin á einni færslu eru orðin 30 þá er komin tími til að skella inn annari færslu!!Ég Jói er semsagt að taka það að mér að blogga hérna, Staðan hérna á the mansion núna er nú ekki góð við erum aðeins tveir eftir í höllini og er það ég og Siggi.. Hann helgi flúði til íslands í gær og Drési fór á hróaskeldu í dag..
Það hefur svo mikið gerst síðan frá síðustu færslu að það er bara pain að þurfa að skrifa það alltsaman en byrjum á Flótta undan lögreglunni..
Það var þannig í síðasta Mánuði að Siggi er bara slakur að keyra heim frá macdonalds þegar hann tekur eftir því að það var svarur bílll að elta hann, fyrst var hann bara eitthvað shit engin smá tilviljun það er bíll alltaf að begja í sömu áttir og ég. Þá ákvað hann að leika sér að beyja hingað og þangað gefa í og reyna að stinga hann af.. Nema að "Svarta Drottningin" það sem við köllum hinn bílinn, hélt alltaf áfram að elta "Bláu Eldinguna" bíllin okkar sko. Sigga var sko ekki sama og gaf hreinlega bara meira í. Þá urðu þeir í hinum bílnum eitthvað pirraðir og byrjuðu að veifa honum út í kant og þessháttar og siggi bara fock off og gaf þeim fingurinn.. Hinir byrjuðu að flauta, blikka ljósunum og fleyra og siggi bara eitthvað "DJÖFULL hvað er að þessum gaurum". En það var ekki fyrr en að við vorum komnir á hraðbrautina hérna fyrir ofan Horsens að hinn bíllin kom við hliðiná okkur og sáum við þá að þessir klikkuðu gaurar voru báðir í lögreglubúningum og bara á ómerktum bíl.. ÞIÐ HEFÐUÐ ÁTT AÐ SJÁ SVIPIN Á SIGGA!!!.. en já siggi nátla stoppaði strax og löggan var ekki sátt.. málið var að bíllin var ekki búin að fara í skoðun og þeir klipptu plöturnar af bílnum og sendu sigga himin háa sekt fyrir glæfranlegan akstur!!
Fifa hneiksli..
Siggi, Helgi og Drési hafa alltaf verið betri en ég í Fifa eða réttara sagt að ég hef verið skelfilega lélegur í þessum leik en það ótrúlega gerðist einn dagin að ég Vann mót sem við settum saman og höfðum við allir sett 50 kr. danskar í pott og svo var spilað uppá það.. En sá sem hafði aldrei unnið Fífa leik áður vann mótið eða réttara sagt ég.. Hehe þeir voru ekki ánægðir get ég sagt.. Siggi fleigði fjarstýringunni í veggin, Andrés fór inni herbergi að gráta og Helgi lagðist í fósturstellinguna og saug á sér puttan.. ég skellti mér bara á barinn og fékk mér bjór fyrir vinningin..
Ráðist á grúbbufélaga.
Drési og Siggi eru það heppnir að vera í grúbbu með Ostborgara eða það er það sem við köllum hann þetta er semsagt dani sem er svo hræðilega mikið fæðingaslys vægast sagt að þeir eru alveg að verða brjálaðir á honum.. einn dagin þá var hann eitthvað að rífa sig og Drési sagði þegiðu við hann og gaurinn kíldi drésa í öxlina og drési ekki sáttur og þrumaði hann í magan og gaf honum svo svaðalegt hnéspark í smettið tók svo blýantinn sinn og stakk í gegnum hendina á honum og meðan hann var þarna fastur við borðið með blýantinn í gegnum hendina þá kemur Siggi hlaupanid með stól og lemur í bakið á honum. Frá Sigga sjónarhorni þá var Ostborgarinn að vinna Drésa svo hann ákvað að lemja þessum stól í hann en ég held að honum hafi bara verið búið að langa það of lengi og varð að láta verða að því..
En annars er lífið bara búið að vera óskup eðlilegt hérna á The Mansion og Mömmur þið þurfið ekkert að hafa áhyggjur af okkur við fáum nóg að borða.. Macdonalds í hvert mál!!
En þar til næst sem verður líklegast eftir sumarið bless bless og njótið sumarsins..
kv. Jói Bjarni
SPLINTER!!The Mansion
JÆJA TURTLES KALLARNIR MÍNIR THID STANDID YKKUR EKKI NOGU VEL Í BLOGGINU THESSA DAGANA OG THAR SEM LINDA ER KVENNMADUR THA ÆTLA ÉG AD SLEPPA HENNI SVO HELGI THU VERDUR AD BLOGGA FYRIR FIMMTUDAGSKVÖLD ANNARS THARFTU AD GERA 100 MAGAÆFINGAR OG 50 ARMBEGJUR!!!!
OVER AND OUT..
SPLINTER
P.S. SHREDDER ER AUMINGI OG ÉG BUFFADI HANN Í MORGUNMAT!!